26.03.2021

Æfingasvæði Bása opnar með takmörkunum frá og með 27. mars

Túlkun viðbragðshóps GSÍ  á reglugerðinni sem tók gildi 25. mars heimilar golfklúbbum og æfingasvæðum opnun með ákveðnum takmörkunum og verður æfingasvæði Bása opið frá og með laugardegi 27. mars samkvæmt neðangreindu.

  • 1. og 2. hæð verða eingöngu opnar
  • Hámarksfjöldi á hvorri hæð er 10 manns
  • Kylfingar þurfa að skrá sig á blað við boltavél þegar mætt er með upplýsingum um nafn og kennitölu, við brottför skal einnig skrá tíma sem varið er á æfingasvæði
  • Kylfingar skulu virða 2ja metra regluna
  • Gætt verður að sameiginlegum snertiflötum með þar til gerðum búnaði (NanoSeptic)
  • Gæta skal að almennum sóttvörnum

Páskar eru framundan og að þeim loknum styttist óðum í vorið.  Þess vegna er mikilvægt fyrir okkur að vinna saman og fara eftir þeim reglum sem settar eru ef starfsemi komandi golftímabils á að fara af stað á réttum tíma. Við biðjum ykkur öll að fara varlega, gæta vel að persónulegu hreinlæti og almennum sóttvörnum. 

Höldum áfram og gerum þetta saman!
Starfsfólk Bása

Til baka í fréttalista