Ný frábær golfnámskeið í ágúst

Ný frábær golfnámskeið eru komin á dagskrá hjá Arnari Snæ í ágúst. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er alltaf rétti tíminn til að læra eitthvað nýtt og ná betri tökum á sveiflunni. Eftirfarandi námskeið verða í boði:
- Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
- Byrjendanámskeið (Helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
- Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu
- Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið í golfi á mánudögum og miðvikudögum
Námskeiðið er kennt á mánudögum kl 18:00-19:00 og á miðvikudögum frá 18:00-19:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 8.ágúst í Básum, Grafarholti
08. ágúst | Básar |
10. ágúst | Básar |
15. ágúst | Básar |
17. ágúst | Básar |
22. ágúst | Básar |
Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi á mánudögum og miðvikudögum
Námskeiðið er kennt á mánudögum kl 17:00-18:00 og á miðvikudögum frá 17:00-18:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 8.ágúst í Básum, Grafarholti
08. ágúst | Básar |
10. ágúst | Básar |
15. ágúst | Básar |
17. ágúst | Básar |
22. ágúst | Básar |
Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi á þriðjudögum og fimmtudögum
Námskeiðið er kennt á þriðjudögum kl 18:00-19:00 og á fimmtudögum frá 18:00-19:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið þriðjudaginn 9.ágúst í Básum, Grafarholti
09. ágúst | Básar |
11. ágúst | Básar |
16. ágúst | Básar |
18. ágúst | Básar |
23. ágúst | Básar |
Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið) 13-14 ágúst
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 10:00-12:00. Námskeiðið er laugardaginn 13.ágúst og sunnudaginn 14.ágúst og verður í Básum, Grafarholti
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið) 13-14 ágúst
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 13.ágúst og sunnudaginn 14.ágúst og verður í Básum, Grafarholti
Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 8.ágúst og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
8.ágúst: Básar
10.ágúst: Básar
15.ágúst: Básar
17.ágúst: Básar
22.ágúst: Básar
Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)
Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla (13-14 ágúst)
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 08:00-10:00. Námskeiðið er laugardaginn 13.ágúst og sunnudaginn 14.ágúst og verður í Básum, Grafarholti:
Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is