Ný frábær golfnámskeið í júní

Ný frábær golfnámskeið verða á dagskrá hjá Arnari Snæ, PGA golfkennara, í júní. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er ekki tilvalið að skella sér á golfnámskeið í júní og keyra golfsumarið almennilega í gang. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari júní:
Golfnámskeið fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja koma vel undirbúnir í sumarið
Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Byrjendanámskeið (Helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu
Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið!
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Golfnámskeið fyrir lengri komna
Tilvalið námskeið fyrir kylfinga sem eru með 10-28 í forgjöf og vilja koma vel undirbúnir inn í golfsumarið. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 4.júní og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:
4.júní: Básar – Járnahögg
6.júní: Básar – Teighögg
11.júní: Básar – Brautartré/Hybrid
13.júní: Básar – Vipp
18.júní: Básar – Pútt
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 3.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
3.júní: Básar – Sveifla
5.júní: Básar – Lengri teighögg
10.júní: Básar – Golfsveiflan fínpússuð
12.júní: Básar – Vipp
17.júní: Básar – Sveifla/teighögg (09:00-10:00)
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi
Námskeiðið er kennt á mánudögum og miðvikudögum kl 18:00-19:00 og á laugardögum frá 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 3.júní í Básum, Grafarholti
3.júní: Básar
5.júní: Básar
8.júní: Básar
10.júní: Básar
12.júní: Básar
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 1.júní og sunnudaginn 2.júní og verður í Básum, Grafarholti:
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 3.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
3.júní: Básar – Sveifla
5.júní: Básar – Lengri teighögg
10.júní: Básar – Golfsveiflan fínpússuð
12.júní: Básar – Vipp
17.júní: Básar – Sveifla/teighögg (10:00-11:00)
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 1.júní og sunnudaginn 2.júní og verður í Básum, Grafarholti:
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)