Ný og glæsileg golfnámskeið hjá Arnari Snæ

Loksins loksins… er búið að opna æfingarsvæðið aftur og nú eru flestir vellir að opna og golfsumarið að fara á fullt. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er ekki tilvalið að skella sér á golfnámskeið í maí og rífa sig í gang. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í maí:
Almennt námskeið – Skemmtilegt námskeið fyrir alla
Byrjendanámskeið – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Byrjendanámskeið (Helgarnámskeið) – Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref
Framhaldsnámskeið – Fyrir þá sem vilja koma leiknum sínum af byrjenda stiginu
Helgarnámskeið – Alvöru keyrsla! Alvöru námskeið
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru sex kylfingar. Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Almennt námskeið
Frábært námskeið fyrir alla kylfinga sem vilja ná betri tökum á golfleiknum þar sem sértaklega verður farið í teighögg og vipp. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 og á laugardögum kl 10:00-11:00. Námskeiðið hefst mánudaginn 11.maí og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
11.maí: Básar – Sveifla
16maí: Básar – Lengri teighögg
18.maí: Básar – Stuttaspil
23.maí: Básar – Lengri kylfur
25.maí: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi
Námskeiðið er kennt á mánudögum kl 18:00-19:00 og á laugardögum frá 09:00-10:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið mánudaginn 11.maí í Básum, Grafarholti
11.maí: Básar
16.maí: Básar
18.maí: Básar
23.maí: Básar
25.maí: Básar
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 16.maí og sunnudaginn 17.maí og verður í Básum, Grafarholti:
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Framhaldsnámskeið
Frábært námskeið fyrir kylfinga sem vilja koma leiknum af byrjenda stiginu. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og laugardögum frá 11:00 – 12:00. Námskeiðið hefst mánudaginn 11.maí og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
11.maí: Básar – Sveifla
16.maí: Básar – Lengri teighögg
18.maí: Básar – Stuttaspil
23.maí: Básar – Lengri kylfur
25.maí: Básar – Sveifla/teighögg
Verð 18.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Helgarnámskeið – Stuttaspil og sveifla
Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta og æfingar sem skila árangri og á sunnudeginum farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 23.maí og sunnudaginn 24.maí og verður í Básum, Grafarholti:
Verð 15.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)