04.07.2019

Þökkum frábærar viðtökur á TrackMan Range

Í gær var TrackMan Range tekið í notkun með formlegum hætti á golfæfingasvæði Bása. Björn Víglundsson, formaður GR ásamt Hinriki Erni Bjarnasyni framkvæmdarstjóra N1 og Helga Teit Helgasyni framkvæmdastjóri einstaklingsviðs Landsbankans klipptu á borða við formlega athöfn þar sem afrekskylfingar Golfklúbbs Reykjavíkur slógu samtímis högg úr öllum básum æfingasvæðisins.

Við viljum koma á framfæri þökkum til okkar helstu styrktaraðila, sem eru N1 og Landsbankinn, einnig þökkum við þeim fjölmörgu samstarfsaðilum sem Básar eiga.

TrackMan Range hefur nú þegar fengið frábærar viðtökur en uppsetning á kerfinu hófst í vor og hefur verið aðgengilegt fyrir kylfinga sem hafa heimsótt Bása. Þeir sem vilja vita meira um TrackMan Range kerfið, virkni þess og möguleika geta fundið allar helstu upplýsingar á www.basar.is

Básar og Golfklúbbur Reykjavíkur óskar félagsmönnum og öðrum kylfingum til hamingju með þennan áfanga innan golfíþróttarinnar á Íslandi.

Til baka í fréttalista