VELKOMIN Í BÁSA
Básar er golfæfingasvæði í Grafarholti þar sem kylfingum gefst tækifæri á að æfa sveifluna með Trackman tækni allan ársins hring. Boðið er upp á 50 bása sem allir hafa hitalampa og skjá til æfinga.
Hurðar eru fyrir básum á báðum hæðum sem veita skjól og því geta kylfingar æft sig bæði í hita og logni. Útisvæðið er 5 hektarar og er æfingasvæðið flóðlýst, því er myrkur ekki fyrirstaða æfinga á dimmari dögum.
Ekki er þörf á að bóka tíma, bara mæta og koma sér fyrir á bás!
Í boði er að leika marga af áhugaverðustu völlum heims og eru vellir reglulega uppfærðir í Trackman kerfinu
Hitalampar og skjáir á hverjum bás sem gerir kylfingum kleift að æfa, leika eða spila við bestu aðstæður hverju sinni
PGA menntaðir golfkennarar bjóða upp á námskeið og einkatíma sem henta kylfingum á öllum getustigum