Grafarkot
Grafarkot er 6 holu æfingavöllur sem er staðsettur framan við Bása. Völlurinn var vígður þann 8. júní 2006 og er góður æfingavöllur fyrir byrjendur og lengra komna. Hver braut er 30 til 60 metrar á lengd og hentar völlurinn því vel til æfinga á stutta spilinu.
Grafarkot er frábær fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í golfiðkun og vilja hita aðeins upp áður en lengra er haldið. Einnig hentar völlurinn vel fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja efla liðsandann við nýjar aðstæður.
Gengið er frá greiðslu vallargjalds í afgreiðslu Bása:
Vallargjald 2023, kr. 1.855
Sumarkort 2023, kr. 18.550